The Hidden One
**Litlu Krúsídúllurnar**
10.03.2008 22:32:09 / hidden

Thundercup!

Jæja ég hef sko ekkert að segja...
ákvað bara að henda inn nokkrum línum...fyrir ykkur 2 sem skoðið síðuna..

Hef alveg núll að segja... á að vera að læra.. en það er ekki að virka...

I need some Focus here please!!
-á að vera að læra í ensku...

EN ég held að ég sem sá arfaslakasti námsmaður sem uppi hefur verið, er farin að halda að ég hafi ekki verið þróuð með heila í að læra, hef aldrei á ævinni fundist ég jafn heimsk og mér finnst ég vera þessa dagana! Held að ég eigi ekki eftir að klára nám, því að ég er HEIMSK!

Ég hélt svo að þetta yrði auðvelt, en það er bara allt annað að koma á daginn núna!

-ég er í einum skitnum áfanga og ég er að klúðra því...Er það hægt???!!?!?!?!

Mér tekst það auðvitað eins og mér einni er lagið!!

En jæja nenni ekki að rugla meira í ykkur, nú veit þjóðin að ég er hræðilegur námsmaður!

BTW! Mig langar samt að vera að læra e-ð sem ég hef gaman að ! Eins og lita og formfræði eða eitthvað í þá áttina því mig langar að kunna að mála !


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 20:28:17 / hidden

Fólk er fíbbl!!

OG já ég fckn veit að það er ekki b í fífl!

EN ég er ógeðslega pirruð....

Vildi bara deila því, er að spá í að fara að sofa! 


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.01.2008 19:15:24 / hidden

Hvað er í gangi ?

Ég veit ekki hverjir eru að koma hingað inn og skoða þennan viðbjóð!

Það hefur mikið verið að ýta í mig einhver "bloggpúki" þessa dagana, því þessum svokallaða bloggpúka er farið að langa að líta dagsins ljós! En það sem stoppar er að á þessari síðu er aldrei sagt stakt orð af viti!

En ég veit til dæmis ekki um hvað ég ætti að skrifa núna, er algjörlega ekki með í þessu nýja æði... Ef ég hefði tölvuna við hendina þegar ég er að fara að sofa eða eitthvað þegar maður er komin út úr dagsins amstri og hefur í alvöru tíma til að slaka á...Þá fyrst held ég að góðar hugsanir læðist fram...

 Núna er ég með uppfullan haus af  "matarleiðbeiningum" ef ég mætti bara orða þetta þannig.. Það eina sem kemur upp í hausinn núna ef ég voga mér að fara að hugsa eitthvað "annað" er "GUÐRÚN, viltu muna eftir hrísgjrónunum", Og svo er ég reglulega minnt á það í mínu litla heilabúi að ég verði að byrja á matnum kl 19:25 svo að hann verði tilbúinn á heimkomutíma húsbóndans.... Enda hungrið farið að læðast að manni eftir langan dag...

 

En ég held að ég verði nú að fara að huga að matnum :)

Skrifa eitthvað af viti, um leið og vitið bankar aftur uppá !

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.09.2007 21:36:17 / hidden

*~*~*~*

Gott kvöld.

Eins og glöggir lesendur hafa tekið eftir, þá er ég ekki mikið að skrifa hér...

Ástæða þess er líklegast að ég hef ekkert að segja!!

ÉG fór út að borða með stelpunum í gærkvöldi og auðvitað varð ég að fá mér smá í aðra tánna með þeim :P

Þetta var alveg geggjað gaman!! Og ég skemmti mér mjög vel, það versta er að ég gat ekki verið lengur :P

he he :) En ég verð það næst! Pottþétt!  

EN ég vaknaði ógeðslega þreytt og þunn í morgun enda drekk ég aldrei hehe...

samt ekkert rosalegt sko bara hausverkur og smá flökurt en það reddaðist... Ísafold mín bjargaði málunum og fórum við bara að leika okkur :P Tjölduðum saman í stofunni og lékum okkur og dönsuðu og það var sko alveg æði, þessi litli sólargeisli bjargar öllu!!

EN ég vil sko bara þakka stelpunum fyrir þetta frábæra kvöld, og styð ég þá hugmynd Elísubetar heilshugar að gera þetta REGLULEGA!! *pottþétt* og og og eins að stofna okkar blogg saman... mér fannst það frábær hugmynd :) :) :)

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 19:46:34 / hidden

Titill

Ojj ég er svo léleg að blogga! ER alltaf með ritstíflu!

En ég er enn að reyna að vakna :P Fékk að sofa til rúmlega tíu í morgun!

Úff það er svo erfitt að vakna svona seint!!

Hefði getað verið búin að setja í 2 vélar þegar ég vaknaði !! haahha ég er svo mikil kjélling!!

En ég þoli ekki að vakna svona seint, fyndið miðað við að ég vildi BARA sofa fyrir svona ári!!

En núna þoli ég ekki að geta ekki nýtt daginn almennilega ! Finnst dagurinn búin um 8 þegar daman fer að sofa :P hehe

 

 

En allaveganna þá hef ég voða lítið að segja... Fór og keypti mér 7 nærbuxur fyrir fimmþúsund kjéll :P

Mjög fínt.. Þarf einmitt að fara að hengja uppúr þvottavélinni svo að ég geti prófað nýjar á morgun!

Keypti mér GEGGJAÐAR boxer! Þær eru svo mjúkar og flottar og POTTÞÉTT þæginlegar sko!!

en eins og ykkur sé ekki sama heheh!!

 

Annars eru Valgerður og Sylvía komnar á klakann og skagann!! Hlökkum alveg geggjað til að sjá þær um helgina að ég vona :) :) :) ER svo spennt að sjá Sylvíu sætu frænkuna okkar :P

Hehe :)

Annars er skvísan okkar svo góð og dugleg að nú sefur hún bara í sínu herbergi og ekkert mál :) 

 Hún er svo dugleg að við eigum ekki til orð!! ELSKUM HANA SVOOO MIKIÐ!!

En nú þarf ég að hætta hún er að taka tennur og er mjög pirruð...

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.08.2007 13:17:59 / hidden

Þunglyndi!

Ég held að ég verði að viðurkenna að þessi dagur gerir mig þunglynda!!

Var að skoða gamlar myndir sem maður á btw ekki að gera, og það er óþolandi að sjá sjálfan sig líta vel út og vera bara sátt með útlitið og líta svo á sig í dag og það er horror!!

 Ég skil ekki hvað fékk mig til að gera mér þetta! Kenni sjálfri mér um!

Enda ekki hægt að kenna neinum öðrum um!

Ég ætla að komast í gömlu  fötin aftur! Nú ert það bara LR kúrinn alla daga og brennslutöflur 5x í viku og reyna að hreyfa sig eitthvað með þessu :) 

Ojj ég hata það að fyrir einu og hálfu ári hafi ég verið 65kg en sé virkilega langt frá því í dag...

 

OG já ég veit allt þetta kjaftæði að elska sjálfan sig eins og maður er og allt það en en!! Ég geri það svosem ég elska mig alveg og Benna minn og Ísafold Lilju prinsessuna mína...

En ég elska ekki aukakílóinn :P

Nú verða allir að senda mér fallegar hugsanir svo ég verði klikkað flott í nóvember þegar skvísan verður 1.árs!

Og svo ég geti verið að spóka mig um á bikiní næsta sumar :P

 

well það er bara ekkert meira en þetta kvart. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.07.2007 11:28:28 / hidden

Dagur númer þrjú :)

og ég er svöng :)

Vildi bara deila því með ykkur :P

En annars er þetta fínt ég er orkumikil og er búin að þvo helling og svona hehe :P

En þetta lagast vonandi fljótlega :)

Ég ætla sko EKKI að gefast upp :)

Kveðja Gúrún.. (sem ætlar að losa sig við e-ð af spikinu ) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 11:54:42 / hidden

JæJA!

Núna í dag byrjaði ég á þessum LR kúr :) 

Vona að þetta geri e-ð fyrir mig :P  

Ætla að leyfa ykkur að fylgjast með :)

Skrifa meira síðar, Benni er í sumarfríi :D :D :D 

Out...Gúrún 


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.07.2007 11:01:34 / hidden

Oft er neyð, en nú er nauðsyn.

Ég veit að ég er lélegasti bloggari veraldar! En eftir kvikmyndina sem ég horfði á í gær sé ég mig tilneydda til þess að blogga.!

Já við Benedikt kíktum í bónusvídjó til þess að taka e-ð til að horfa á því að dagskrá sjónvarpssins var MJÖG óspennandi, vægast sagt!

Eftir dágóða stund sagði Benedikt mér bara að velja og það gerði ég, sá þegar ég var komin með aðra mynd í hendurnar  myndina DreamGirls... og Kippti henni með því mig langaði til þess að sjá  hana.

Ok það var kannski ekki  það gáfulegasta! Ég VEIT að ég er stelpa en HALLÓ!!  Þetta var einum of!

Sver að Benedikt var að meika þessa mynd betur en ég!

Ég bjóst við bara þessari venjulegu mynd sem er leikið og svo sungið í þeim atriðum sem kjéllurnar áttu að vera á sviði eða svoleiðis... EN NEI!

Þetta var bara söngvamynd dauðans, og ég lýg því ekki að kjánahrollurinn var farinn að koma æ oftar!

Mér fannst þetta einum og langt gengið að fólkið myndi bara syngja stanslaust um allt og ekkert!

EN Shit hvað þessi Jennifer er með KLIKKAÐA rödd!! Vá! Beyoncé féll í skugga að mínu mati, nema í einu lagi sem var geggjað *hrollur*!

Persónulega fannst mér Beyoncé þurfa að grenna sig einum of fyrir þessa mynd, á köflum fattaði ég ekki að þetta væri hún, því hún er svo horuð í þessari mynd að það var á köflum óhuggnalegt.

Mér finnst hún mun flottari með smá utan á sér en ekki eins og tálgaður tannstöngull!!

En allaveganna þá létti mér bara hálpartinn þegar myndin var búin, þetta var of mikið fyrir mig þó svo að ég elski stelpumyndir og svoleiðis...EN ég held að Benedikt hafi bara fílað þetta betur en ég!

Anyways...Þið sjáið hvort þið horfið á þetta eða ekki... fær ekki hæstu einkun hjá mér....

Gúrún. 


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 11:47:30 / hidden

Elsku Brútus minn!

Ég sakna þín svooo mikið!! Ég er frekar ónýt án þín! Ég hefði ALDREI átt að láta þig hefði bara átt að þrauka þetta!! Ég á svo erfitt með að vera án þín.. Dreymir þig nánast á hverri nóttu :/

Ég vildi óska þess að ég hefði aldrei látið þig því að ég elska þig svooo mikið mömmukall!!

Mér finnst ég ógeðsleg manneskja að hafa látið þig í burtu! Kannski saknar þú mín ekkert en ég sakna þínsvooo mikið og ég held að Sesar sé mér alveg sammála!!

Ég bara varð að koma því frá mér að ég væri gjörsamlega eyðilögð án þín!! Ég elska  þig svooo mikið! 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 20:53:29 / hidden

Blogg

ohh ég veit það svoo vel að ég er ekki að standa mig í þessum málum!!

Ég er bara með mestu ritstíflu heimsins eins og er ...Fórum í sumarbústað um helgina það var sweet!

Ég skrifa meira þegar ég hef eitthvað að segja af viti.

Gúrún 


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 23:24:45 / hidden

...

Ég á mágkonu hana Lilju hún er alltaf að spilla mér með því að nota msn svona seint á kvöldin og þá er ég ekki að nenna í rúmið því að við virðumst geta talað endalaust!! hehe þannig að ég ákvað bara fyrst að ég er vakandi og Ísafold sofandi og Benedikt að vinna að blogga!!

Reyna að standa við áramótaheitið!!

Ég á í miklum erfiðleikum þessa dagana! Það er svoo erfitt að vera kona!!! Belive it!

Oki þetta verður kannski ekki skemmtileg færlsa að lesa en ég bara verð að deila þessu með heiminum! BARA VERÐ! :$ 

Þessa dagana eins og flestir vita er ég með 20 aukakíló liggjandi utan á mér, mér til mikillar mæðu og þessum aukakílóum fylgir slatti af appelsínuhúð OJJ!!! ég æli við að sjá sjálfa mig í speglinu enda er ég ekki lengi að troða fötum utan á mig ! Ég er nú með eitthvað krem sem á að hjálpa mér en er ekki enn farin að sjá það gerast! Þannig að ég er bara ómannlega illa vaxin þessa dagana!

EN þetta er sko ekki allt skal ég ykkur segja...lýsingin hér fyrir ofan veit ég að lætur marga fá martraðir á næturnar en ég skal sko bæta um betur!!!

Annað og ég tek fram ANNAÐ brjóstið á mér ákvað að taka vaxtakipp!! ok ég veit að brjóstin á mér eru ógó lítil en þau hafa alltaf verið misstór! en núna SHIT! Allt í einu er bara geiran farin að gægjast í tíma og ótíma!! Það er ekki fallegt! Og ég get t.d. ekki gengið um í hlýrabol vegna þess að annað er svo áberandi stærri að það er ekki eðlilegt og geiran stendur í alvöru uppúr þegar ég er í´brjóstarhaldara og uss ég er ógeðslega miður mín útaf þessu og á ekki einhverja morðfjársupphæð til að láta laga þetta!  Og þetta er ógeðslegt mér líður ekki eins og kvenmanni! og það er sko engin lygi! úff ég bara varð að deila þessu því þetta er svo að angra mig!!

En annars er ég bara að húsmæðrast og eiga hús sem er allt í rúst as usual og er að reyna að safna pening fyrir já Drauma---------!!! sem verður seint skal ég segja ykkur!

Akkuru er ekki svona á Íslandi eins og í usa að einhver svona celeb kemur og gefur mér þúsund dollara til að uppfylla drauminn minn!! bara GAY! þannig að mínir draumar rætast seint skal ég segja ykkur !!

En já þetta er nóg af þessu blessaða bulli! heyrumst í þessu 


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 12:27:29 / hidden

Svartir Peningar!!

Ég verð örlítið að tjá mig um þá!

ÉG ÞOLI EKKI þegar fólk er að lauma svörtum peningum í búðarkassann! beint fyrir framan nefið á manni! þá langar mig helst til að biðja um peninginn til baka því mínir peningar eru ekki að fara í það sem ég vildi að þeir færu í! Mér væri líklegast sama ef að fólk myndi ekki láta mig sjá þegar það er að lauma þessu svona en... mér er meinilla við að sjá þetta og finnst þetta óþolandi!

Meira var það ekki að sinni þetta fer bara svo í taugarnar á mér! 


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.05.2007 11:33:14 / hidden

5.maí 2007

Þú átt ammælí dag,

þú átt  ammælí dag,

þú átt ammæli Guðrún....

Þú átt ammælí dag!!

VEII!!!

Vildi bara óska sjálfri mér til hamingju með 22 árin :)

Ég er veik eða svona já... en látum það ekki stoppa okkur!! 


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 11:12:53 / hidden

A short One

Jæja ég ætlaði nú bara að óska eftir sjálfboðaliðum í bakstur eða þrif!

Foreldrar mínir ákváðu að fá sér ný húsgögn bara einn tveir og þrír og ég var nú búin að segjast ætla að taka þeirra... EN frábær  tími hjá þessum elskum því nú bættist heldur betur á mig !

Ég er að fara að halda kaffi á laugardaginn því þá verð ég gömul geit og ég á eftir að þrífa allt húsið og baka! og og og ....*innsog* raða nýju húsgögnunum!

Þannig að ef einhver hefur ekkert að gera og langar að koma og þrífa þá er ég heima híhí

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3